TRIBAL KALDPRESSAÐ ÞURRFÓÐUR FYRIR MEÐALSTÓRA / STÓRA | Ferskur kalkúnn

TRIBAL KALDPRESSAÐ ÞURRFÓÐUR FYRIR MEÐALSTÓRA / STÓRA | Ferskur kalkúnn

2.5 kg
5.800 ISK
Farðu í vöruupplýsingar
TRIBAL KALDPRESSAÐ ÞURRFÓÐUR FYRIR MEÐALSTÓRA / STÓRA | Ferskur kalkúnn
1/2

TRIBAL KALDPRESSAÐ ÞURRFÓÐUR FYRIR MEÐALSTÓRA / STÓRA | Ferskur kalkúnn

Stærð
5.800 ISK

TRIBAL KALDPRESSAÐ ÞURRFÓÐUR FYRIR MEÐALSTÓRA / STÓRA | Ferskur kalkúnn

2.5 kg

Sækja á lager, Opið alla MIÐVIKUDAGA 16:30 - 19:00

Ennishvarf 29
203 Kópavogur
Ísland

+3546622370

Tribal kaldpressað þurrfóður

Fresh Pressed Adult Turkey → Kaldpressað hundafóður með ferskum kalkún og sætum kartöflum.

Tribal Fresh Pressed Adult Turkey er hágæða hundafóður með 35% ferskum kalkún og sætum kartöflum. Fóðrið er kaldpressað, kornlaust og án kjötmjöls og hentar fullorðnum hundum af öllum tegundum.

Kaldpressun er mild framleiðsluaðferð sem hjálpar til við að varðveita næringargæði hráefnanna og gerir fóðrið einstaklega auðmeltanlegt. Fóðrið brotnar hratt niður í maga, sem stuðlar að betri meltingu og næringarnýtingu. Því hentar það sérstaklega vel fyrir hunda með viðkvæma meltingu, fæðuóþol eða ofnæmi.

Uppskriftin inniheldur einnig heil egg, vatnsrofið fiskprótein, laxalýsi, prebiotic FOS, grænan krækling, glúkósamín og kondróitínsúlfat sem styðja við heilbrigð liðamót, auk blöndu af náttúrulegum jurtum sem stuðla að almennri vellíðan.

Helstu eiginleikar

  • 35% ferskur kalkún.
  • Kaldpressað fyrir betri meltingu og næringarnýtingu.
  • Kornlaust og án kjötmjöls.
  • Hentar fullorðnum hundum af öllum tegundum.
  • Heil egg veita hágæða prótein.
  • Vatnsrofið fiskprótein er auðmeltanleg uppspretta próteina.
  • Grænn kræklingur, glúkósamín og kondróitínsúlfat styðja við heilbrigð liðamót og hreyfigetu.
  • Laxalýsi er náttúruleg uppspretta Omega-3 fitusýra sem styðja við heilbrigða húð og glansandi feld.
  • Prebiotic FOS styður við heilbrigða meltingu.
  • Náttúruleg jurtablanda styður við almenna heilsu og vellíðan.

Innihald

Ferskur kalkúnn (35%), sætar kartöflur (35%), vatnsrofið prótein úr bláhvítingi (9,4%), heil egg (8%), rófumassi, bjórger, laxalýsi (0,6%), sólblómaolía (0,6%), inúlín (uppspretta prebiotic FOS), jurtablanda (0,25%: steinselja, rósmarín, netla, kamilla, salvía, timjan, kóríanderlauf, fíflalauf og lakkrísrót), glúkósamín (980 mg/kg), grænn kræklingur (500 mg/kg) og kondróitínsúlfat (450 mg/kg).

Næringargildi

  • Prótein: 23%
  • Fita: 10%
  • Trefjar: 2,8%
  • Aska: 6,5%
  • Omega-3: 1,95 g/kg
  • Omega-6: 12,35 g/kg
  • Kalk: 0,9%
  • Fosfór: 0,6%
  • Orka: 362,9 kcal / 100 g

Viðbætt vítamín og steinefni

Inniheldur meðal annars A-, C-, B6- og D3-vítamín ásamt járni, sinki, mangani, kopar, joði og seleni. Náttúruleg andoxunarefni úr tókóferólum stuðla að ferskleika fóðursins.

Ráðlagður dagskammtur

Þyngd hunds 5 kg 10 kg 15 kg 20 kg 25 kg 30 kg 40 kg 50 kg 60 kg
Ráðlagður dagskammtur 95 g 160 g 200 g 255 g 300 g 355 g 445 g

 

Fylgdu skammtatöflunni á umbúðunum og aðlagaðu magnið eftir þyngd, virkni og líkamsástandi hundsins. Skiptu dagskammtinum niður í tvær máltíðir fyrir sem besta meltingu.

Skráðu þig á póstlistann og fáðu 10% afslátt af fyrstu pöntun

Komdu í áskrift og fáðu 15% afslátt af McAdams þurrfóðri

Aðrar vörur sem þér gæti líkað við