Tribal hvolpa startpakki – sparaðu 10% - miðlungs og stærri hundar
Flottur startpakki fyrir hvolpa með öllu sem þeir þurfa í byrjun.
Í pakkanum færðu þurrfóður, blautmat, nammi og nagstangir.
Tribal Cold Pressed - Puppy Turke Hágæða hvolpafóður sem inniheldur ferskan kalkún og sætar kartöflur. Fóðrið er kornlaust og án kjötmjöls, náttúrulegt og sérstaklega þróað fyrir allar tegundir hvolpa sem eru að þroskast. Fóðrið er kaldpressað og hannað til að veita hundinum þínum hámarks næringu í hverjum bita. Kaldpressun heldur mikilvægum vítamínum, steinefnum og ensímum óskertum, sem hjálpar hundinum að nýta næringuna betur. Fóðrið er auðmeltanlegt, létt í maga, án aukaefna, og hentar því vel fyrir hunda sem eru með ofnæmi, óþol eða viðkvæmir í maga.
Tribal 80% Gourmet Sausage - Fresh Turkey Hágæða og náttúrulegur blautmatur sem er sérstaklega hannaður fyrir hunda á öllum æviskeiðum. Hann er gerður úr 80% ferskum kalkún sem tryggir frábært bragð og góða næringu. Tilvalinn fyrir hunda með viðkvæma maga.
Tribal Trainers - Turkey & Cranberry Dog Treats Hið fullkomna mjúka þjálfunarnammi fyrir hunda og hvolpa frá 8 vikna aldri. Nammið er framleitt úr ferskum kalkún, kínóa og trönuberjum sem hjálpar til að styðja við ónæmiskerfið. Nammið er loftþurrkað við lágan hita til að varðveita bragð og næringarefni í hverjum bita.
Tribal Dental Sticks - For Large Dog Nagstöngin er fyrir miðlungs og stærri hunda eftir sex mánaða aldur, allt að 15 kg til að koma í veg fyrir tannstein. Í stönginni er PhytoDent™, sem er einstakt sjávarþang sem dýralæknar mæla með. Tannstangirnar okkar stuðla að heilbrigði tanna, tannholds og veita jafnframt ferskan andardrátt. Tribal nagstangir eru vegan, kornlausar og fitusnauðar, framleiddar án viðbætts sykurs eða gerviefna, sem gerir það að verkum að þær henta öllum hundum. Til að ná sem bestum árangri skaltu gefa eina stöng á dag í að minnsta kosti fjórar vikur.
Skráðu þig á póstlistann og fáðu 10% afslátt af fyrstu pöntun
Komdu í áskrift og fáðu 15% afslátt af McAdams þurrfóðri
Aðrar vörur sem þér gæti líkað við